Við og okkar markmið
Hússtoð var stofnað með það markmið að bjóða húsfélögum faglegri, persónulegri og skilvirkari þjónustu. Við trúum því að góð þjónusta byggist á trausti, aðgengi og skýrum samskiptum.
Að baki Hússtoð stendur reynslumikið teymi með fjölbreytta þekkingu á rekstri fasteigna og húsfélaga, þar á meðal lögfræðiþjónusta, löggiltur fasteigna- og leigusali og samstarf við iðnaðarmenn og verktaka í fremstu röð.
Framtíðarsýn
Við viljum vera fyrsti valkostur húsfélaga þegar kemur að faglegri stjórnun, rekstri og ráðgjöf. Markmið okkar er að auðvelda eigendum að viðhalda verðmæti eigna sinna, stuðla að góðu ástandi fasteigna og skapa traust og skilvirkt samstarf innan húsfélaga.
Hlutverk húsfélaga er meðal annars að sjá um varðveislu, viðhald og rekstur sameignar í þágu eigenda. Gildin okkar
Traust
Við vinnum af heilindum og leggjum áherslu á gagnsæi í allri þjónustu og ákvarðanatöku.Samvinna
Við stuðlum að góðum samskiptum milli eigenda, stjórna og þjónustuaðila til að ná bestu mögulegu niðurstöðu fyrir húsfélagið.Fagmennska
Við byggjum þjónustu okkar á þekkingu, reynslu og vönduðum vinnubrögðum sem skila húsfélögum raunverulegum árangri.